Ómar mikli
Útlit
Ómar mikli (عمر بن الخطاب; fæddur um 586 – 590, dáinn 644) var vinur og aðdáandi Múhameðs spámanns. Hann komst til valda að Abú Bakr látnum og ríkti í tíu ár.
Íslamska veldið breiddist hratt út undir stjórn Ómars og lagði meðal annars undir sig Persaveldi á tveimur árum. Ómar var drepinn af persneskum fanga.[1]
Ómar er í hávegum hafður meðal súnní múslima en sjítar telja hann valdaræningja.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Andri Már Hermannsson; Arnþór Daði Guðmundsson; Bjarki Kolbeinsson; Ólöf Rún Gunnarsdóttir (17. mars 2017). „Hverjir voru helstu leiðtogar íslams strax eftir dauða Múhameðs?“. Vísindavefurinn. Sótt 28. mars 2024.
Fyrirrennari: Abú Bakr |
|
Eftirmaður: Uthman |
