Fara í innihald

Jósefos Flavíos

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Þýsk þýðing á Gyðingastríðum Jósefosar frá 1581.

Jósefos Flavíos, oft nefndur Jósefos sagnaritari, (37 – um 100) var Gyðingur frá Galíleu. Hann er þekktur sem helsti sagnfræðingur Gyðinga á fornöld. Hann tók beinan þátt í uppreisn Gyðinga 64–70 og var viðstaddur eyðileggingu Jerúsalem og musterisins.

Jósefos var af góðum ættum presta og jafnvel æðstupresta. Í ævisögu sinni rekur hann ættir sínar til Hasmónea, oftar þekktir sem Makkabear, en þeir stofnuðu sjálfstætt ríki í Palestínu á annarri öld fyrir okkar tímatal.

Í upphafi stríðsins var hann tekinn til fanga af rómverska hershöfðingjanum Vespasíanusi sem sendur hafði verið af Neró keisara að berja niður uppreisnina. Hann lýsir því sjálfur í ævisögu sinni hvernig hann stjórnaði aðgerðum í Galíleu gegn Rómverjum en sveik félaga sína og gaf sig Vespasíanusi hershöfðingja á vald um leið og Rómverjar birtust. Þar sem hann var af góðum ættum og hátt settur meðal andstæðinganna hefur hann fengið sæmilega góða umönnun.

Hann sagðist hafa spáð fyrir Vespasíanusi að hann yrði næsti keisari enda ættu messíasarspádómar Biblíunnar við hann. Þetta þótti með ólíkindum enda ekkert brottfararsnið á Neró keisara auk þess sem Vespasíanus var ekki af júlísku ættinni sem allir keisarar höfðu tilheyrt.

Stuttu síðar framdi Neró sjálfsmorð og Vespasíanus lagði af stað til Rómar að heimta keisaratignina, en Títus sonur hans tók við stjórn hersins. Samkvæmt Jósefosi voru þeir feðgar svo ánægðir með að spádómurinn hafði ræst að þeir ættleiddu hann inn í flavísku ættina. Eftir það nefndist hann Jósefos Flavíos (réttara Títus Flavíus Jósefus). Vespasíanus varð keisari árið 69 og ríkti í tíu ár, en Títus tók síðan við af honum og ríkti í tvö ár.

Bækur Jósefosar

[breyta | breyta frumkóða]

Bókin um Gyðingastríðin var skrifuð að beiðni þeirra feðga Vespasíanusar og Títusar og kom væntanlega út stuttu eftir að stríðinu lauk árið 73. Hún er skrifuð á arameísku, móðurmáli Jósefosar, en seinna þýddi hann hana á grísku með aðstoð annarra. Aðeins eru til grískar útgáfur af ritinu. Tuttugu árum seinna skrifaði hann helsta rit sitt, Sögu Gyðinga, en þá var Dómitíanus, bróðir Títusar, orðinn keisari.

Árið 97 skrifaði hann rit þar sem hann svarar gagnrýni á sögurit sitt. Grikkinn Apíon dró í efa að fornsögur af Gyðingum gætu verið sannar og benti meðal annars á að Heródótos sagnfræðingur sem skrifaði um þjóðir heims á fimmtu öld f.o.t. minnist ekkert á Gyðinga.

Árið 99 skrifaði hann ævisögu sína. Þá var flavíska ættin fallin frá völdum fyrir nokkru og Trajanus orðinn keisari.

  • „Rit Jósefosar í enskri þýðingu William Whiston“.
  • „Flavius Josephus hjá livius.org“.